Steinnes - Ræktunarbú

Samantekt sumarsins 2009 Þá er komið að samantekt sumarsins 2009.  Hvernig Steinnes og einnig hross í eigu Steinnes fjöldskyldunnar stóðu sig

Samantekt sumarsins 2009

Þá er komið að samantekt sumarsins 2009.  Hvernig Steinnes og einnig hross í eigu Steinnes fjöldskyldunnar stóðu sig á kynbótabrautinni í grófum dráttum. 

Svo ætla ég að segja frá undir hvaða stóðhesta við leiddum hryssurnar þetta árið.

Ég ætla að fjalla í grófum dráttum um það hross sem stóðu sig vel í kynbótadóm.

 

  • Kiljan frá Steinnesi hlaut 8.59 í aðaleinkun, 8.84 fyrir hæfileika, hann hlaut 5 níur fyrir brokk, skeið, stökk, villja og fegurð í reið. Hann hefur hlotið 8.21 fyrir byggingu, 9 fyrir hófa og 9.5 fyrir bak og lend.  Beðið var með að senda hann út landi og er stefnan tekin á næsta Landsmót 2010. Kiljan er í eigu danans Ingolf Nordal.
  • Glettingur frá Steinnesi hefur hlotið 8.26 í aðaleinkun, 8.48 fyrir hæfileika, 9 fyrir fegurð í reið. 7.93 hlaut hafnn fyrir byggingu, 9 fyrir bak og lend og 9 fyrir prúðleika. Glettingur er í eigu Páls Bjarka Pálssonar á Flugumýri. Þess má geta að við eigum nokkur undan honum og eru þau stór og myndarleg.
  • Dofri frá Steinnesi hefur hlotið 8.22 í aðaleinkunn, 8.26 fyrir hæfileika, og 8.16 fyrir byggingu. Dofri er enn í eigu okkar.
  • Tryggvi-Geir frá Steinnesi hefur hlotið 8.03 í aðaleinkun klárhestur, 8.10 fyrir hæfileika, 9 fyrri tölt. 7.93 fyrir byggingu, 9 fyrir bak og lend. Tryggvi-Geir er í eigu Tryggva Bjöss.
  • Freydís frá Steinnesi hefur hlotið í aðaleinkun 8.27, 8.30 fyrir hæfileika, 8.23 fyrir byggingu þar af 9 fyrir hófa.  Eigandi er Baldvin Ari Guðlaugsson. 
  • Gerpla frá Steinnesi Gammsdóttir hefur hlotið 8.24 í aðaleinkunn klárhryssa, hún hefur hlotið 8.36 fyrir hæfileika, 5 níur, tölt, brokk, stökk, vilja og fegurð í reið. Í byggingu hefur hún hlotið 8.05. Hún er í eigu Ganghesta Ehf.
  • Ólga frá Steinnesi 5.v klárhryssa undan Gamm hlaut 8 slétta í aðaleinkun. 7.80 fyrir hæfileika, 9 fyrir fegurð í reið og fet. 9.29 fyrir byggingu, 9 fyrir hófa. Ólga er ung hryssa sem á mikið inni og mun að öllum líkindum sjást aftur á næsta ári. Hún er í eigu okkar.
  • Dögg frá Steinnesi 6.v klárhyssa hefur hlotið 8.07 í aðaleinkun. 8.10 fyrir hæfileika, 9 fyrir tölt. 8.03 fyrir byggingu, 9 fyrir háls. Dögg verður á járnum í vetur og er mun hún líklega sjást á keppnisbraut nú í vetur. Dögg er í eigu Jóns Árna Magnússonar.
  • Árdís frá Steinnesi Gammsdóttir er klárhryssa sem hefur hlotið 7.96 í aðaleinkunn. 7.96 fyrir hæfileika, 9 fyrir tölt. 7.96 fyrir byggingu. Árdísi var haldið í sumar. Hún er í okkar eigu.
  • Pera frá Steinnesi Gammsdóttir 4.v hefur hlotið 7.81 í aðaleinkun. 7.78 fyrir hæfileika og 7.85 fyrir byggingu. Pera er í eigu Emilie Lodetoft.  
  • Bragi frá Kópavogi sem hefur hlotið 8.31 í aðaleinkun, 8.51 fyrir hæfileika, 9 fyrir tölt, stökk og fegurð í reið. Fyrir byggingu 8 slétta. Bragi er að helming í okkar eigu móti Tryggva Bjöss.

     

Þetta er besta ár í ræktun hjá okkur og verður erfitt að ná þessum árangri á komandi árum.

Ætla að fjalla lítillega hvert við sendu merarnar í sumar.

Við notuðum Gamm töluvert nú í sumar því hann hefur verið að skila okkur afbragðshrossum, 7 fyrstuverðlauna hross eru til undan honum og 8 annarsverðlauna hross. Gammur skilar hrossum með sérlega ljúft geðslag, góðar grunn gangtegundir, eru þetta yfirleitt mjög góð hross. Undir hann fóru 50 merar í sumar og var fyljun yfir 90 %.

  • Assa frá Steinnesi 7.98, hefur skilað 3 fyrstuverðlauna afkvæmum og 3 annarsverðlauna
  • Venus frá Steinnesi, Össu dóttir
  • Krafla frá Brekku Gustdóttir með 8.48 klárhryssa.
  • Melódía frá Steinnesi, undan Fiðlu frá Steinnesi
  • svo fóru nokkrar c-merar undir hann líka

     

Dofri frá Steinnesi, ungur undan Dáð frá Steinnesi, Össudóttur.

  • Dimmbrá frá Steinnesi, Sveins-Hervarsdóttir
  • Hera frá Steinnesi, Kolfinnsdóttir
  • Gæska frá Kommu, Gáskadóttir
  • Stikla frá Brjánslæk, Adamsdóttir frá Meðalfelli
  • Rist frá Hvammi

     

Bragi frá Kópavogi, bleikálótti Geysissonurinn

  • Vordís frá Kommu, Gustdóttir
  • Djörfung frá Steinnesi
  • Árdís frá Steinnesi
  • Petra frá Skagaströnd

     

Kiljan frá Steinnesi.

  • Muska frá Sigríðarstöðum, fyrstuverðlauna meri
  • Sylgja frá Þingeyrum, Glettingsdóttir
  • Vaka frá Steinnesi.

     

Glettingur frá Steinnesi.

  • Frigg frá Kirkjubæ

     

Glymur frá Innri-Skeljabrekku

  • Sif frá Blönduósi, Orradóttir, móðir Gamms
  • Silja frá Steinnesi, undan Sif og Tývari

 

Seiður frá Flugumýri.

  • Bleikála frá Vatnsdalshólum, bleikálótt vindótt

Sædynur frá Múla.

  • Fiðla frá Steinnesi, hlotið 8.72 fyrir hæfileika

Krákur frá Blesastöðum.

  • Kylja frá Steinnesi, helsta ræktunar hryssan, móðir Kiljans og Kötlu

Roði frá Garði.

  • Katla frá Steinnesi, undan Kylju og Gamm

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu

  • Gæfa frá Steinnesi

Þetta sumar hefur verið skemmtilegt, alltaf gaman þegar ræktunin er að skila sér. Núna bíður maður bara spenntur eftir að sjá hvað gerist með 4.v hryssurnar í vetur og sýningar næsta sumar. Spennan fer svo að magnast með hvernig folöldin næsta sumar verða.

Allt er gott að frétta af búinu og allir við hesta heilsu, lausir við svínaflensu og aðrar flensur.

 

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf