Steinnes - Ræktunarbú

Enn fjölgar í stóðinu. Fjölgað hefur í Steinnesi stóðinu um 4 einstaklinga og eru þeir ekkert af verri kantinum. Við notuðum mikið okkar eigin hesta

Enn fjölgar í stóðinu.

Fjölgað hefur í Steinnesi stóðinu um 4 einstaklinga og eru þeir ekkert af verri kantinum. Við notuðum mikið okkar eigin hesta síðasta sumar og höfum við feðgarnir sérstaklega beðið spenntir eftir afkvæmum Dofra en við höfum skoðað mjög álitleg tryppi undan honum þar sem hann var notaður sem graðtittur. Loksins kom það fyrsta í heiminn.

Núna á aðfaranótt sunnudags kastaði hún Sif gamla Orradóttir og Gamms móðir snyrtilegum hesti undan Glym frá Innri-Skeljabrekku, sá var brúnskjóttur. Ekki var það alveg eins og við vildum hafa það en Sif fór einnig undir Glym árið áður og kom þá með fallega vindskjótta hryssu. En ekki ætlum við að kvarta yfir einum hesti þar sem það hafa komið meira og minna hryssur í vor.

Á sunnudaginn sjálfan kastaði svo Blægja frá Steinnes, stór og myndarleg Gammsdóttir, fallega rauðblesóttri hryssu og leikur vafi á undan hvaða klár það folald er, en það er snyrtilegt og háfætt.

Aðfararnótt Mánudagsins kastaði svo Gæska frá Kommu, Gáskadóttir með meiru. Magnús var fyrstur á staðinn með myndarvélina á lofti og náði einkar skemmtilegum myndum af ferlinu frá fyrstu átökum til enda. Það folald var undan Dofra og eftirvæntingin því mikil og fannst Magnúsi fæðingin ganga hægt fyrir sig var að því komin að fara að taka á með merini, en lét það nægja að styðja hana andlega í átökunum, gekk það betur við þessa fæðingu en þegar hann sjálfur eignaðist sitt fyrsta barn. En úr merinni kom kolsvartur hestur sem að öllum líkindum mun verða grár þegar fram líða stundir rétt einsog eigandi Magnús.

Og nú í nótt kom svo enn einn gullgripurinn. Það var móálótt hryssa undan Roðadóttur sem að yfirmaðurinn á bænum á, Jósef,  en það folald er undan Sæs syni sem er í eigu Hreins á Leysingjarstöðum og þykir einstaklega mikið efni og virkilega fallegur foli. Verður gaman að sjá hvað hann mun fara í í dómi í sumar ef hægt verður að sýna hann sökum þeirra veikinda sem að stofninn liggur í.

Og svo örstutt í lokin um höfuðbúgreinina, en um 30 ær eru eftir að bera eftir langa törn síðan um miðjan apríl, hefur þessi sauðburður gengið með ágætum þó lömbin séu fleiri en við var búist, þrílembur fóru hátt í hundraðið og margir tvílemdir gemlingar þurfa að ganga með bæði lömb. Þá verða ærnar bara að gjöra svo vel og mjólka meira, nóg hefur verið dælt í þær fóðrinu í vetur enda geta þær varla hreyft sig vegna spiks.










Jón Árni annar bóndi í goggunarröðinni.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf