mánudagur 24.maí 2010 - Lestrar 129
| |
Fyrsta folaldið sem kom í liðinni viku var undan Freyju frá Steinnesi, sem er jörp hryssan undan Tývari frá Kjartansstöðum. Hún var leidd undir Þrist frá Feti um miðjan júní í fyrra og kastaði samkvæmt áætlun framfallegri og háfættri hryssu, ekki gátum við fengið allt sem við báðum um því hún var einungis brún, en maður sættir sig við kynið, uppbyggilegt folald þar á ferð. |
Síðar sama dag kastaði svo Vordís frá Kommu, annarsverðlauna Gustdóttir. Hún var leidd undir Braga frá Kópavogi í fyrrasumar og kom með svona líka snyrtilega bleikstjörnótta hryssu, háfætta og fíngerða. Snyrtilegar hreyfingar í því folaldi og verður gaman að sjá hvernig fótaburðurinn kemur í framtíðinni.
Svo undir morgun næsta dag kom mesta gersemin sem við höfum fengið í sumar. Hún er undan Gæfu frá Steinnesi, meri með 8.13 fyrir hæfileika, grásokkóttri með erfðavísi fyrir skjóttu. Hún var leidd undir gæðinginn Gaum frá Auðsholtshjáleigu. Við vorum ánægðir við feðgar þegar við fórum að vitja um merarnar um morgunin og sáum þetta folald brölta á fætur, sokkótt á öllum fótum og jarpt, mögulega gæti það orðið grátt í framtíðinni en það er erfitt að segja um það að svo stöddu. Merin var með einhvernsteyting við okkur svo við áttum erfitt með að komast að folaldinu til að athuga með kyn þess, en að lokum fengum við þó laun erfiðisins og var það þar með ljóst við höfðum fengið jarpsokkótta hryssu, virkilega háfætta og fallega. Virkilega góður morgun í allastaði, blíðu veður og mikil gersemi komin í heiminn. Nú þarf maður bara að bíða í 4 ár til að sjá hvað hún fer hátt. :)
Núna er beðið með óþreyju eftir næstu folöldum en á dagskránni eru 2 undan Glym og svo undan Krák og Dofra. Maður stendur með öndina í hálsinum og vonar að allt þetta verði nú hryssur því stóðhesta eign er alltaf jafn mikið bras finnst okkur feðgum.
En læt þetta gott í bili og fer að snúa mér að sauðfjárræktinni sem á hug okkar allra þessa dagana.
Jón Árni.



