Steinnes - Ræktunarbú

Folöld farin að týnast í heiminn. Núna kasta merarnar ein og ein hverja nótt. Manni hreinlega verður kalt að horfa á folöldin  brölta á fætur í þessum

Folöld farin að týnast í heiminn.

Flygill, undan Fiðlu og Sædyn, stórmyndarlegur, fæddur 2010
Flygill, undan Fiðlu og Sædyn, stórmyndarlegur, fæddur 2010
Núna kasta merarnar ein og ein hverja nótt. Manni hreinlega verður kalt að horfa á folöldin  brölta á fætur í þessum blessaða kulda sem fylgir stífri norðanáttinni sem að blæs hér alla daga núna, er drottinn minn djöfull er ég fegin að hafa hana núna frekar en austan og sunnan átt útaf þessu gosi. Vart var þó við fíngerða öskuskán á bílum hérna í morgun.

Fyrsta merin sem kastaði hjá okkur var hún Ólga frá Steinnesi sem er 1. verðlauna Gammsdóttir, og kom hún með rauða hryssu undan Braga Kópavogi, vorum við að vonum sáttir með hryssuna en skemmtilegra hefði verið að fá hana bleikálótta, maður fær víst ekki allt. Sömu nótt kastaði svo Sunna frá Steinnesi sem er einnig 1. verðlauna Gammsdóttir rauðblesóttum hesti undan Sædyn frá Múla, er það háfætt og sérstaklega  myndarlegt folald.

Tveimur dögum síðar kom Sif Gammsmóðir með einstaklega skemmtilega skjóttan hest undan Hvin frá Blönduósi, er hann höttóttur breiðblesóttur, með einn stóran svartan hring á annari síðunni en annars alhvítur, verður að öllum líkindum grár og hefur því hlotið nafnið Fálki, er þetta ótrúlega skemmtilegt folald að fylgjast með enda vantar ekki lífsgleðina í hann.

Síðan kastaðir Silja dóttir Sifjar jarpskjóttum, háfættum hesti undan Presti frá Hæli, kom hann í heiminn í stífri norðanátt og frosti og var ekki sjón að sjá hann blautann og kaldann að reyna að brölta á fætur í rokinu sem jafnan feikti honum um koll, en ekki gafst hann upp og þegar hann náði taki á því eina sem hægt var að hanga í, spenanum þá sleppti hann ekki takinu fyrr en maga fylli var náð.

Búist er við nokkrum merun á næstu dögum og mun ég uppfæra það reglulega auk annara frétta af kynbóta sýningum sem standa sem hæst nú á dögum.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf