Steinnes - Ræktunarbú

Gammur og Dofri Þá hef ég loksins tíma til að setja inn auglýsingu um hvar aðalstóðhestarnir okkar verða til afnota í sumar og ætla aðeins að segja frá

Gammur og Dofri

Þá hef ég loksins tíma til að setja inn auglýsingu um hvar aðalstóðhestarnir okkar verða til afnota í sumar og ætla aðeins að segja frá hvernig þeir hafa haft það í vetur. Umræddir stóðhestar eru Gammur og Dofri, mun setja inn fleiri auglýsingar um yngri hestana þegar betra tækifæri gefst.

Dofri frá Steinnesi var seldur nú í haust, eða hlutafélag var gert um hann en eigum við ennþá 1/3 honum. Hann er í tamningu hjá Jakopi Sigurðssyni og lítur það bara vel út. Hluthafar kíktu á hann um mánaðarmótin febrúar/mars og komu jákvæðir heim. Dofri er stór og myndarlegur og eru til nokkur tryppi undan honum á bænum Kornsá í Vatnsdal og hafa þau fengið útlitið frá föður sínum, en þau eru stór og falleg. Við reynum að setja inn myndir af þeim við tækifæri. Dofri verður hjá Jakopi fram að landsmóti og til afnota þar  og svo verður Dofri til afnota hjá Hrossaræktarsambandi Vesturlands eftir landsmót.

Gammur frá Steinnesi er hjá Tryggva Bjöss eins og svo oft áður. Upp á síðkastið hefur hann verið notaður sem fjölskyldu hestur, en bæði Harpa kona Tryggva og sonur hans hafa verið á honum á knapamerkja námskeiðum og gengur það afbragðs vel. Við erum alltaf með margt undan honum í tamningu enda höfum við ekki hikað við að nota hann á margar af okkar sterkustu merar, hann skilar góðu geðslagi og fótaburði og auðveldum hrossum í tamningu. Hann verður til afnota á Blönduósi hjá Tryggva fyrir landsmót og síðan hjá Birgi í Vogum í Skagafirði eftir landsmót í sumar.

Til að pannta undir Gamm og Dofra á húsi er þægilegast að hafa samband við
Magnús Steinnesi: 897-3486

Til að pannta undir Gamm á seinna tímabili:
Birgir í Vogum: 453-6627 eða 863-3327

Og til að pannta undir Dofra þarf bara að hafa samband við Hrossaræktarsamband Vesturlands.



Jón Árni.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf