Það fjölgar ört í Steinnes stóðinu, bæði eru að koma folöld úr merum í stórum hópum og svo fyllast þær jafnóðum aftur. Þó nokkuð af merum hafa verið fluttar hornanna á milli undir hina ýmsu stóðhesta og svo höfum við varla við að sjá nýju folöldin sem koma í heimin svo ört fjölgar þeim. Einning bendi ég á að Prestur frá Hæli brúnskjóttur Gammssonur í okkar eigu að hluta til fer í merar á næstu dögum.
Við skulum byrja þennnan pistil með því að segja stuttlega frá þeim folöldum sem hafa verið að koma í heiminn.
Árdís er köstuð fallegu folaldi sem við höfum beðið lengi eftir en hún sú meri sem að Magnús sjálfur reið hvað mest og segir sjálfur að betra hross hafi hann ekki komist á í mörg ár, en það er nú ekki furða þar sem hann fer engan vegin nógu mikið á bak enda orðin gamall og stirður. En Árdís er Gammsdóttir með 9 fyrir tölt, úr henni kom jarpur hestur undan Braga frá Kópavogi.
Eik frá Steinnesi, 1. verðlauna meri sem fór undir Óm frá Kvistum og undan henni kom bleik hryssa og var eigandinn Jósef Magnússon ángæður þar sem of mikið af hestum hefur komið undan merinn síðustu ár.
Silja frá Steinnesi, moldótt meri undan Tývari frá Kjartansstöðum og Sif frá Blönduósi kastaði loksins folaldi undan Glym og var það vindótt hryssa, var nánast alveg eftir bókinni, hún hefði reyndar mátt vera moldótt.
Þá að hryssu fluttningum.
Loks kom að því að við ákváðum að nota Orra, en undir hann fórum við með Kröflu frá Brekku sem við treystum helst til að verða okkar sterkasta ræktunar meri í framtíðinni.
Svo fór Snerpa frá Köldukinn, móðir Gerplu frá Steinnesi undir Braga. Einnig fór Ólga Gammsdóttirin undir Braga.
Muska frá Sigríðarstöðum fór undir Kiljan, ein af nokkrum sem við stefnum með þangað.
Assa gamla fór undir tveggja vetra fola sem ber nafnið Kapall frá Kommu, en hann er undan Kjarnorku frá Kommu, en hann er bróðir Kaspars og Kappa frá Kommu. Kapall er brúnskjóttur Álfssonur sem miklar vonir eru bundnar við.
Sif fór einnig undir Álfsson, Hvin frá Blönduósi en hann er 2. vetra og bar sigur úr bítum í ungfola sýningu í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann er gráskjóttur undan Hrímu hans Tryggva Bjöss.
Prestur frá Hæli, virkilega efnilegur Gammsonur, 4 vetra verður settur í merar í Steinnesi á næstu dögum. Áhugasamir hafið samband í síma Magnúsar, 897-3486. Myndir af honum koma inn vonandi í dag eða á morgun.
Læt þetta duga í bili, Jón Árni.



