Steinnes - Ræktunarbú

Jón Árni stóð sig ágætlega í keppni á Hnjúkatjörn. Hið árlega ísmót Neista var haldið um daginn á Hnjúkatjörn og skelltu þeir bakkabræður Jón Árni og

Jón Árni stóð sig ágætlega í keppni á Hnjúkatjörn.

Jón Árni og Gleypnir í góðri sveiflu.
Jón Árni og Gleypnir í góðri sveiflu.
Hið árlega ísmót Neista var haldið um daginn á Hnjúkatjörn og skelltu þeir bakkabræður Jón Árni og Gleypnir sér með í keppnina. Gekk þeim bara ágætlega.

Þeir skráðu sig í áhugamanna flokk þar sem hvorugur hefur mikla reynslu af keppni. Þeir fóru inní úrslit með einkunina 5.87 og annað sætið. Það er hægt að segja að þetta hafi kom þeim á óvart þar sem mörg góð hross voru í sama flokki. Úrslitin gengu fínt en þeir duttu þó niður í þriðja sætið enda er Þokki hans Óla A ekkert lamb að leika sér við þegar kemur að tölt mótum. Loka einkunn þeirra var 6.17 og voru þeir bara sáttir með það enda Gleypnir að fara í frumraun sína bæði í keppni og á ís.

Þess má einnig geta að Gammsdóttirin Þruma frá Steinnesi sem er í eigu Lilju Maríu Suska endaði í fjórða sæti í barnaflokk. Gammur sjálfur var einnig með í keppninni og endaði hann í þriðja sæti í opnumflokki, var honum riðið af Patreki sem hefur verið að vinna hjá Tryggva Bjöss. Það er í lagi að nefna það að nokkuð var um Gammsbörn á þessu móti.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf