mánudagur 06.júní 2011 - Lestrar 169
Undan Kröflu höfðum við vonast eftir að fá brúna hryssu, varð okkur ekki að ósk okkar að þessu sinni og fengum við einungis brúnan hest, það er þó skárra en rauður hestur. Er þetta fínasta folald, háfætt og hálsinn er ágætlega mjúkur, verður sérstaklega gaman að fylgjast með þessum í uppvextinum.



