Steinnes - Rćktunarbú

Merarnar kasta í éljaganginum. Sauðburður hefur náð hámarki  í Steinnesi og hefur Jón Árni vakað allar nætur hingað til, bæði yfir ám og hryssum og hefur

Merarnar kasta í éljaganginum.

Kyndill frá  Steinnesi 2010. Undan Kylju og Krák Blesastöđum.
Kyndill frá Steinnesi 2010. Undan Kylju og Krák Blesastöđum.
Sauðburður hefur náð hámarki  í Steinnesi og hefur Jón Árni vakað allar nætur hingað til, bæði yfir ám og hryssum og hefur hann því séð mörg hver folöldin koma í heiminn enda virðast merarnar oft kasta seinnipart nætur í kringum sólarupprás. Síðast liðna nótt köstu þær Melódía, Gæfa og Gæska í norðangarra  og éljagangi. Voru folöldin misvel á sig komin þegar að eftirlitsmann bar að garði.

Það var um þrjúleitið sem Jón Árni fór fyrst að athuga merarnar, var þá allt með feldu en var Gæfa farin að halda sig utan við hópinn. Klukkutíma seinna var farið í annan eftirlitsleiðangur og var þá komin brún hryssa undan Kappa frá Kommu, var ekki mikið hægt að sjá um gæði byggingar hennar vegna þess hve kalt henni var.

Um hálf fimm var svo athugað aftur og þá var Gæska köstuð brúnskjóttum hesti sem bar sig ansi vel miðað við aðstæður, stíf norðan átt og éljagangur. Þetta folald er líklega það fallegasta sem við höfum fengið í vor enda með eindæmum háfætt og hálslangt. Er það undan Presti frá Hæli.

 Á þessum tíma versnaði veðrið og virtist folaldið undan Gæfu ekkert ætla að hressast svo kerran var tengd við Fordinn og merin flutt heim í hesthús, á meðan flutningarnir stóðu yfir kastaði svo Meldódía fallegri brúnni hryssu undan Presti Hæli.

Núna er beðið í ofvæni eftir að Krafla kasti, gerist það líklega í dag eða næstu nótt. Hún fór undir Orra.


Jón Árni



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf