Steinnes - Ræktunarbú

Páskahret og drífa yfir öllu Þá hefur páskahretið litið dagsins ljós. Það er örlítið kaldhæðnislegt að maður lofaði mildan veturinn í síðustu

Páskahret og drífa yfir öllu

Þá hefur páskahretið litið dagsins ljós. Það er örlítið kaldhæðnislegt að maður lofaði mildan veturinn í síðustu fréttarfærslu og svo kemur stórhríðin daginn eftir og allt ófært. Ég ætla að nýta það að ekki er mikið gert í svona veðri á bænum og segja stuttlega frá helstu stóðhestum sem tengjast Steinnesbúinu.


Dofri frá Steinnesi var seldur nú í haust, eða hlutafélag var gert um hann en eigum við ennþá 1/3 honum. Hann er í tamningu hjá Jakopi Sigurðssyni og lítur það bara vel út. Hluthafar kíktu á hann um mánaðarmótin febrúar/mars og komu jákvæðir heim. Dofri er stór og myndarlegur og eru til nokkur tryppi undan honum á bænum Kornsá í Vatnsdal og hafa þau fengið útlitið frá föður sínum, en þau eru stór og falleg. Við reynum að setja inn myndir af þeim við tækifæri. Þess má geta að Dofri verður til afnota hjá Hrossaræktarsambandi Vesturlands eftir landsmót.

Gammur frá Steinnesi er hjá Tryggva Bjöss eins og svo oft áður. Upp á síðkastið hefur hann verið notaður sem fjölskyldu hestur, en bæði Harpa kona Tryggva og sonur hans hafa verið á honum á knapamerkja námskeiðum og gengur það afbragðs vel. Við erum alltaf með margt undan honum í tamningu enda höfum við ekki hikað við að nota hann á margar af okkar sterkustu merar, hann skilar góðu geðslagi og fótaburði og auðveldum hrossum í tamningu. Hann verður til afnota á Blönduósi hjá Tryggva fyrir landsmót og síðan hjá Birgi í Vogum í Skagafirði eftir landsmót í sumar.

Bragi frá Kópavogi hefur verið að koma fram í keppni í vetur og hefur það gengið ágætlega, hann vann t.d. töltið á Íslandsmótinu á Svínavatni í vetur. Bragi er viljugur klár með feikna fótarburð og við notuðum hann mikið í sumar og það gerði Tryggvi einnig en hann á 50% hlut í honum á móti okkur. Líklega verður hann til afnota hér í Húnavatnssýlum í sumar en ef það breytist mun koma frétt um það hér á síðunni.

Óðinn frá Hvítárholti er einnig í okkar eigu að hálfu á móti Tryggva, en hann keyptum við í haust. Óðinn hefur hlotið 8.53 fyrir hæfileika, rúmur og skemmtilegur alhliða hestur. Hann verður að öllum líkindum í Húnavatnssýslum í sumar eins og Bragi.

Við fjárfestum síðan í Gammssyninum Presti frá Hæli, en það er stór, faxprúður og myndarlegur stóðhestur. Hann er 4 vetra og stefnt með hann í dóm nú í vor, hann er í þjálfun hjá Mettu í Þúfum. Miklar vonir eru bundnar við hann. Við eigum 1/3 hlut í honum, ekki er ákveðið hvar hann mun vera til afnota en það kemur líklega í ljós fljótlega eftir kynbótasýningu.

Einnig ætla ég að tala um Kiljan en hann er nú komin til Þorvalds aftur og er stefnt á hækkun í kynbóta dómi í vor. Við ætlum að fara með einhverjar merar undir hann því okkur líkar sérstaklega vel við þau akvæmi sem við eigum undan honum, flugrúm og allur gangur laus.

Tjaldur frá Steinnesi, er Admassonur frá Ásmundarstöðum. Hann er bróðir Gamms undan Orradótturinni Sif frá Blönduósi. Tjaldur er brúnskjóttur faxprúður foli á 5. vetur, hann er í tamningu hjá Agnari Þór en Agnar á helminginn í honum. Stefnt er með hann í kynbótadóm í vor og kemur þá í ljós hvar hann verður til afnota í sumar.

Ætli ég segi þetta ekki gott í bili. Fljótlega verða komnar myndir af graðhestunum hér á síðuna og verður þá hægt að skoða þá betur.  

Jón Árni



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf