Steinnes - Ræktunarbú

Ræktunarbú ársins 2010 Á uppskeruhátíð bænda og hestamanna um síðustu helgi veittu Samtök hrossabænda í A-Hún Steinnesbúinu viðurkenninguna "Ræktunarbú

Ræktunarbú ársins 2010

Á uppskeruhátíð bænda og hestamanna um síðustu helgi veittu Samtök hrossabænda í A-Hún Steinnesbúinu viðurkenninguna "Ræktunarbú ársins 2010". Eins fékk búið viðurkenningu fyrir hæst dæmdu stóðhesta 2010 í A-Hún í 5 og 6 vetra flokki og hæst dæmdu hryssu í 6 vetra flokki.

Stóðhestarnir sem viðurkenningar voru veittar fyrir voru Tjaldur frá Steinnesi með 8,00 og Kiljan frá Steinnesi með 8,71 (aldursleiðrétt 8,78), en Kiljan var áður búinn að fá viðurkenningu Fagráðs í hrossarækt sem hæst dæmda kynbótahross ársins á landsvísu (sjá frétt um það hér). Hryssan sem fékk viðurkenningu var Ólga frá Steinnesi með 8,22 en hún er klárhryssa undan Gammi og Hnotu frá Steinnesi.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf