Steinnes - Ræktunarbú

Seint skrifa sumir en skrifa þó. Langt er liðið síðan síðast var skrifað hér inn, maður verður víst að bæta úr því. Ætla aðeins að fara í gegnum það í

Seint skrifa sumir en skrifa þó.

Langt er liðið síðan síðast var skrifað hér inn, maður verður víst að bæta úr því. Ætla aðeins að fara í gegnum það í þessum pistli hvert við leiddum okkar helstu ræktunarmerar en þær voru fluttar landshorna á milli nánast.

Er ekki rétt að byrja á aðal ræktunar merinni. Kylja gamla var leidd að loknu landsmóti undir heimsmeistarann Spuna frá Vestur-koti. Átti í byrjun að fara með hana í fósturvísa fluttningar en gekk það ekki sem skildi svo seint og um síðir fór hún í hólf með honum og fyljaðist að lokum.

Katla fór einnig suður á land, var hún fyrst leidd undir Mjölni frá Hlemmiskeiði en þann toll höfðum við unnið í stóðhestahappdrætti og vorum nokkuð spenntir fyrir að nota hann, ekki var þó öll sælan með það og kom hún tóm þaðan, var þá brugðið á það að skella henni einnig undir Spuna og hafðist með því að koma í hana fyli þó seint væri. Hefðu við viljað koma fleiri merum að eftir landsmót en var það ekki í boði þar sem eftirspurnin var gífurleg.

Einnig fórum við með Musku frá Sigríðarstöðum, en hún fór undir hann áður en hann var dæmdur og vorum við að taka sénsinn þar sem við höldum yfirleitt ekki undir ódæmda fola, eina vitneskjan sem við vissum um klárinn var video af honum síðan um veturinn og ættin. Var staðfest fyl í henni fyrir landsmót svo maður grét ekki að eiga vona á folaldi undan heimsmeistara á þeim tímapunkti, og svo bættust fleiri við seinna meir.

Fiðla fór undir Roða frá Garði en við teljum að hann muni henta vel á hana þar sem hann er einkar bolléttur og fallegur foli, er komið staðfest fang þar.

Leiddum við tvær hryssur undir Eld frá Torfunesi, það voru Skyggna frá Brekku, sem er meri sem við eigum í sameign með Helgu og Þorleifi en þau eru vina fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku, óskum við þeim velgengni í því. Einnig fórum við með systur Kiljan hana Kötlu þangað og komu báðar þessar hryssur fyljaðar heim.

Læt ég þetta nægja í bili enda óþarfi að skrifa allt í einu því ekki virðist hugmyndaflugið í fréttunum vera að fara með okkur hérna í Steinnesi, betra að eiga inn í fleiri pósta.

Bestu Kveðjur
Jón Árni





Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf