Steinnes - Ræktunarbú

Sunna bætist í hóp 1. verðlauna mera frá Steinnesi Sunna frá Steinnesi, Gammsdóttir hækkaði verulega í kynbótadóm á nýafstaðinni Héraðssýningu í Víðidal

Sunna bætist í hóp 1. verðlauna mera frá Steinnesi

Sunna frá Steinnesi, Gammsdóttir hækkaði verulega í kynbótadóm á nýafstaðinni Héraðssýningu í Víðidal og fór upp í 8,04 í aðaleinkunn. Hún hækkaði í einkunn fyrir sköpulag með 7,81, þar af 9 fyrir höfuð en Sunna hefur einstaklega frítt höfuð, stór augu og fíngerðan svip.  Sunna fékk 8,19 fyrir hæfileika en sérstök ánægja var með einkunn hennar fyrir tölt en þar hækkaði hún sig upp í 9,0.  

Sunna gaf af sér rauðblesótt merfolald undan Kiljani vorið 2009, sem fékk nafnið Telma í höfuðið á annarri 1. verðlauna heimasætu á bænum og meðeiganda Sunnu. Helga Una Björnsdóttir hefur séð um tamningu á Sunnu og folaldið undan Kiljani er í hennar eigu.

Þess má geta að Sunna, Árdís, Gerpla og Katla Gammsdætur frá Steinnesi hafa allar hlotið 9 fyrir tölt.

Sköpulag

Höfuð

9

Háls/herðar/bógar

8

Bak og lend

8

Samræmi

8

Fótagerð

7

Réttleiki

8

Hófar

7.5

Prúðleiki

7

Sköpulag

7.81

Kostir

Tölt

9

Brokk

8.5

Skeið

6.5

Stökk

8

Vilji og geðslag

8.5

Fegurð í reið

8.5

Fet

7.5

Hæfileikar

8.19

Hægt tölt

8.5

Hægt stökk

7.5

 

 

Aðaleinkunn

8.04



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf