miðvikudagur 12.janúar 2011 - Lestrar 184

Drífa frá Steinnesi, móðir Dynfara.
Svona til skemmtunar fyrir lesendann er ég að hugsa um að fara örlítið yfir hver hefur hvaða hross eins og staðan er núna :)
Tryggvi Bjöss er með ein 8 tryppi sem stendur. Þau eru eftirfarandi:
- Þar ber helst að nefna stóðhestinn Kjóa frá Steinnesi, Kjói er Aronssonur og bróðir Gamms og Tjalds að móðurinni en
þeir eru báðir 1. verðlauna stóðhestar. Hann er 4.vetra og fer virkilega skemmtilega af stað í tamningunni og virðist verða vel
hágengur foli.
- Svo er það Dynfari frá Steinnesi, það er 5. vetra jarpur stóðhestur undan Blæ frá Torfunesi og 1. verðlauna merinni Drífu frá
Steinnesi. Dynfari er með mjög gott tölt og feikilega rúmur á gangi, myndarlegur og geðgóður. Þess má geta að hann er í eign Tryggva
að hálfu.
- Sædís frá Steinnesi er okkar efnilegasta 4. vetra meri. Hún er myndarleg, lofthá og fíngerð. Tryggvi byrjaði á henni í haust og
strax varð ljóst að þar var efnilegt tryppi á ferð. Sædís er undan Sæ frá Bakkakoti og Kötlu frá Steinnesi sem er systir Kiljans
að móðurinni og undan Gamm frá Steinnesi. Má segja að við bindum vonir við þessa hryssu.
- Kátína frá Steinnesi er snyrtilegt tryppi á 5. vetur. Hún er mjög smávaxin þar sem hún varð fyrir því sem folald
að komast ekki á spena við fæðingu og fannst hún nær dauða en lífi. Hún hefur aldrei orðið söm eftir þetta og
líkamlegur þroski ekki mikill svo væntingar í byggingu eru ekki miklar. Þrátt fyrir stærð er ótrúlegur kraftur, vilji og mikill
fótaburður í henni enda hefur hún ættirnar til þess að vera mjög kröftugt reiðhross en hún er undan Kylju frá Steinnesi, þar
af leiðandi systir Kiljans og Kötlu. Kátína er undan 1. verðlauna Gammssyninum Garpi frá Hvoli. Ekki skemmir það fyrir að hún er
brúnskjótt. Þess má einnig geta að Tryggvi á hana að hálfu.
- Elja frá Steinnesi er jörp 4. vetra Smáradóttir. Hún var á Hólum í frumtamninga prógramminu og leist okkur ágætlega
á það hvernig hún fór af stað í tamningunni. Hún lætur ekki mikið yfir sér en við teljum að hún sé nokkuð
efnileg hryssa, alhliða og frekar falleg i útliti.
- Mars frá Steinnesi er jörp, stór og frekar myndarleg hryssa undan Glettingi frá Steinnesi og Venus frá Steinnesi en hún er útaf Össu-kyninu okkar sem og Drífa, Dögg og Dáð frá Steinnesi en þetta eru allt 1. verðlauna hryssur. Mars er öflug tölt hryssa og teljum við að hún muni geta átt erindi í kynbótadóm líkt og þau sem áður hafa verið nefnd hér.
- Prýði frá Hæli, brún fríð Krummadóttir frá Blesastöðum. Hún er undan Snerpu frá Köldukinn en það er móðir Gerplu og Skerpu frá Steinnesi. Prýði er ágætlega efnileg en við keyptum hana 2 vetra ásamt móður sinni, en móðirina höfðum við selt Jonna á Hæli og átti hann hana í nokkur ár þangað til við keyptum hana aftur. Prýði er prýðilega hágeng og falleg en þó er spurning hvað prýði hennar og fríðleiki dregur hana upp í byggingardómi.
- Síðust er Skerpla frá Brekku en hún er undan Grásteini frá Brekku sem að Tryggvi fór hátt með á síðasta Fjórðungsmóti á Vesturlandi. Hún er snyrtilega hryssa sem við keyptum sem vetur gamalt tryppi í von um að leika sama leikinn og þegar við keyptu Gustdótturina Kröflu þaðan fyrir fáeinum árum. Skerpla var einnig á Hólum í frumtamningunum og leist okkur ágætlega á hana þar og er hún er prufu hjá Tryggva til að sjá til með framtíðina á henni og líst okkur ekkert illa á hana sem góða reiðhryssu.
Þá held ég að ég láti þetta duga í bili, en á næstu dögum mun ég bæta við fleirum tamningamönnum og fara í gegnum þau hross sem við erum að láta temja sem stendur.
Jón Árni



