fimmtudagur 20.janúar 2011 - Lestrar 189
Munkur frá Steinnesi
Þau hafa sem stendur tvo stóðhesta frá okkur í sínum höndum. Það eru þeir Munkur og Tjaldur en fyrirtækið sem þau eiga Sporthestar ehf. er eigandi Tjalds að hálfu.
Munkur er stóðhestur á fjórða vetur, móálóttur að lit undan fyrstuverðlauna merinni Musku frá Sigríðarstöðum sem er í okkar eigu og undan verðlauna hestinum Adam frá Ásmundarstöðum. Agnar tók við honum fyrir tæplega tveim vikum og líkar vel við. Við teljum að þessi hestur muni eiga erindi á Landsmót í sumar en hann er byggingarlega séð fallegur og alhliða á gangi. Nú er bara að sjá hvað setur og hvernig folinn þróast fram eftir vetri.
Tjaldur er brúnskjóttur foli, einnig undan Adam og svo undan Sif frá Steinnesi sem er móðir Gamms frá Steinnesi og efnilegs Aronssonar sem hægt er að lesa frekar um í pistlinum og tamningar hjá Tryggva Bjöss.
Tjaldur fór í fyrstuverðlaun síðastliðið sumar og vonum við að hann bæti sig nokkuð örugglega í hæfileikum næsta sumar.
Ætli ég láti þetta ekki duga núna.
Jón Árni.



