Steinnes - Ræktunarbú

Tamningar- Erlingur Ingvarsson. Erlingur Ingvarsson tamningarmaður sem stundar tamningar í Torfunesi. Hann var einu sinni einn vetur hérna í reiðhöllinni

Tamningar- Erlingur Ingvarsson.

Staka frá Steinnesi
Staka frá Steinnesi
Erlingur Ingvarsson tamningarmaður sem stundar tamningar í Torfunesi. Hann var einu sinni einn vetur hérna í reiðhöllinni á Blönduósi og tamdi þá fyrir okkur meðalannar með fínum árangri. Síðasta vetur byrjuðum við að senda hross til hans í tamningu og ætlum við að halda því áfram enda flinkur drengur þar á ferð. Hann er með tvö hross sem stendur og einhver fleiri er stefnt á að senda til hans.

Þau hross sem hann er með eru eftirfarandi:

Glanni frá Steinnesi er rauðhálfblesóttur Gammssonur á 6 vetur. Hann fór í frumtamningar á hólum 4. vetra og var síðan sendur til Erlings til að gera hann að keppnis hesti, þar hefur hann verið núna í rúmt ár. Hann á ágætlega hágengur, viljugur og ber sig vel í reið. Vonandi verður hann tilbúinn í sölu núna í sumar. Glanni er í eigu Jóns Árna yngsta ræktandans í Steinnesi.

Laufi frá Steinnesi er brúntvístjörnóttur stóðhestur á 4. vetur. Hann er undan Sveini-Hervari og Hnotu frá Steinnesi, hann er þar af leiðandi bróðir Hrafnhettu og Ólgu frá Steinnesi sem báðar eru 1. verðlauna Gammsdætur undan Hnotu. Laufi er snyrtilegur foli, fallegur og fer ágætlega af stað í tamningu, stefnt er með hann í dóm í vor ef allt gengur upp. Laufi er í eigu Jósefs Magnússonar.

Jósef Magnússon/ Afi hefur hug á að senda tvær kynbóta hryssur til Erlings núna á næstu vikum en það eru þær Staka og Kvika frá Steinnesi.

Staka var sýnd í fyrra sumar og fór í fínan dóm, rétt yfir 7.80 þá einungis nokkuru mánuða tamin. Hún er undan Topari frá Kjartansstöðum sem er albróðir Töfra, og undan gullfallega gæðingnum Brönu frá Steinnesi :).  Hún er hágeng og falleg rauðtvístjörnótt hryssa sem við bindum nokkrar vonir við.

Kvika er undan 1. verðlauna merinni Eik frá Steinnesi og Roða frá Múla. Kvika hefur verið í ræktun síðast liðið árið. Hún er hágeng og frekar fríð hryssa, með gott geðslag og verður gaman að sjá hvernig hún þróast þar sem í raun hefur ekki mikið verið tjónkað við hana í tamningu. Stefnt er með hana vonandi í dóm í vor.

Annars er allt gott að frétta hér í Steinnesi, veðrið reyndar verið með leiðinlegra móti þar sem skipst hefur á rigningu og snjó, hita og frosti og fer það aldrei vel í skepnur. En hrossin eru þó í framför eins og alltaf á þessum tíma og ekkert nema gott frá því að segja.

Jón Árni.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf