Steinnes - Ræktunarbú

Tamningar - Kynbótahross frá Steinnesi. Ætla aðeins að nefna þau hross sem við búumst við í dóm í vor sem eru frá Steinnesi. Við höfum oft lagt uppúr því

Tamningar - Kynbótahross frá Steinnesi.

Kiljan og Þorri
Kiljan og Þorri
Ætla aðeins að nefna þau hross sem við búumst við í dóm í vor sem eru frá Steinnesi. Við höfum oft lagt uppúr því að fylgjast með efnilegum hrossum sem við höfum selt frá okkur. Ég ætla að nefna nokkur þeirra hérna og svo kemur að öllum líkum seinniparturinn af þeim fljótlega inn líka. En kynbótahross frá okkur eru dreifð víða um landið.  Tala fyrst um selda stóðhesta sem við búumst við að sjá á Landsmóti í Skagafirði sumarið 2011.

Hæstan í þessum flokki ber að nefna Kiljan frá Steinnesi. Hann er í umsjá Þorvalds Árna líkt og síðastliðin vetur. Stefnt er með Kiljan í kynbótadóm í vor í þeirri von um að koma honum yfir 9.00 í hæfileikum. Lítið er um þetta að segja í rauninni en Kiljan er bara í stífri þjálfun fyrir sunnan.

Næst má nefna Dofra frá Steinnesi, hann er í þjálfun hjá Kobba Sig í Borgarfirði. Hefur hann bætt sig síðan fjögurra vetra, en hann var ekki sýndur í fyrra vegna þeirra pestar sem að þá gekk í gengum hrossa stofninn hérlendis. Stefna hluthafar að því að fara að skoða hann núna í Mars.

Gletting frá Steinnesi má einnig nefna í þessum flokki. Hann er í eigu Flugumýrar fjölskyldunar og segir orðið á götunni að stefnt sé með hann í keppni á landsmóti. Vonum að þeim gangi allt í haginn þar.


Ég  mun koma með frétt bráðlega um þær kynbóta hryssur sem erum hér og þar um landið.

Jón Árni.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf