fimmtudagur 27.janúar 2011 - Lestrar 155

Árdís móðir Baugalínar
Þau hross sem hann hefur í höndum er eftirfarandi:
Baugalín frá Steinnesi, undan gæðingnum Árdísi frá Steinnesi ( Gammsdóttir með 9 tölt ) og Baug frá Víðinesi. Baugalín er rauð að lit og á fjórða vetri. Hún er rétt um mánaðar tamin sem stendur og líst okkur alls ekki illa á það sem hún hefur að bjóða. Rúm á tölti og brokki og sýnir fínan fótaburð. Vonandi kemst hún í dóm í vor.
Ör frá Steinnesi, brún Gammsdóttir á fjórða vetri. Hún var í frumtamningunum á Hólum og er því orðin vel reiðfær. Hún fer ágætlega af stað og er frekar lík Gammsbörnum í tamningu. Hún er frekar myndarleg og stór og verðu að öllum líkum fínt reiðhross.
Þáttur frá Steinnesi. Er sex vetra foli undan Bjarkari frá Blesastöðum, hann var í tamningu fyrir áramót hjá Tóta og Ásdísi Helgu en þau voru með tamningarmiðstöð að Grund í Eyjarfirði. Þetta er stór og fallegur foli og verðu fínn reiðhestur í framtíðinni.
Vordís frá Steinnesi er brúnskjótt Gammsdóttir af Össukyninu okkar sem hefur gengið einkar vel með sem kynbótarkyn. Hún er á fjórðavetur og er rétt reiðfær en hún var hjá Sibbu og Jonna á Hæli í haust. Hún var að koma á hús og er beðið eftir að sjá hvað hún mun sýna fram eftir vetri.
Skjóna frá Steinnesi, er meri sem Jósef Magnússon á en hann er elsti ræktandinn á bænum. Hún er rétt á frumtamningar stigi og vitum við fátt annað en að hún er sjálf tamin og þæg.
Klerkur frá Steinnesi er brúnn foli á sjötta vetur undan Kná frá Steinnesi sem er elsta afkvæmi Kylju frá Steinnesi. Klerkur er eflings hestur en einnig bara rétt á frumtamningar stigi en lofar góðu sem feikna reiðhestur, með fótaburð og myndarlegur. Hann er einnig í eigu Jósefs.
Nú er að bíða og sjá hvað setur með þessi hross en læt þetta gott heita í bili.
Jón Árni



