
Þeir fengu ekki skemmtilegt veður hrútarnir tveir sem fæddust nú í október byrjun, þeir komu í heiminn í norðan vindi og slyddu. Ekki létur þeir íslenska haustið stoppa sig heldur klöngruðust á fætur á sleipri jörðinni og byrjuðu að skoppa um til að koma yl í kroppinn. Er þetta nú með seinna móti sem að sauðburði líkur hjá okkur en þó hefur það einu sinni gerst að rolla bar 15 október. En nú getur maður sagt að sauðburði sé formlega lokið.
Göngur hafa staðið yfir og hefur Jón Árni farið í flestar göngur fyrir Steinnesbúið og leiddist honum það ekki enda alinn upp í fjárhúsunum með kindunum, vænlegur hrútur þar á ferð. Lömbin voru ekki jafn væn og við vonuðumst til en þó er ekkert hægt að vera að kvarta yfir stærðinni.
Höfum við sent ein 150 lömb til slátrunar og kom það ágætlega út, meðal vigt 18.10 og gerð um 9, og fita 6.75. Ekki mikið hægt að kvarta yfir þeirra útkomu þar sem um stóru lömbin var að ræða sem virðast bera minni vöðva en þau litlu. Um 400 lömb munu fara 12 október og mun ég líklega setja inn litla frétt um það. Um helgina á að ómskoða og dæma lömbin og er spennan farin að magnast fyrir það en segir það til um ásetninginn í ár.



