Steinnes - Ræktunarbú

Vorylur og hækkandi sól Jæja það má segja að það hafi gengið á með hraglanda og norðan gaddi síðan síðasti pistill datt inn í október en ekki ætlar maður

Vorylur og hækkandi sól

Jæja það má segja að það hafi gengið á með hraglanda og norðan gaddi síðan síðasti pistill datt inn í október en ekki ætlar maður samt að kvarta yfir þessum milda og góða vetri. Margt hefur verið í gangi en hefur heimilisfólk ekki haft tíma né tæknikunnáttu til að segja frá því í fáeinum orðum, svo ég tek þetta víst aftur í mínar hendur ( Jón Árni ). Hross hafa verið að koma fram í keppni, sýningum og öðrum geirum.

Hægt er að segja að flest hross hafa farið sérlega vel að hér í umdæmi Þingeyraklausturs, en veturinn hefur verið sá mildasti sem að ég hef lifað en eru þeir þó bara 18, varla hefur sést snjór hérna. Geldhrossin hafa fengið að sjáum um sig sjálf að miklu leiti en fá þó hey á nokkura daga fresti og fylfullar merar og folöld hafa fengið vel af úrvals töðu og eru hrossin yfirleitt feit og pattaraleg eins og við er að búast í svona tíð. Það er sérlega gaman að fylgjast með folöldunum síðan síðasta sumar enda einkar líkur hópur þar saman kominn, mikið af Kiljans afkvæmum og líkar okkur vel við að allur gangur er galopinn og virðist ekki vanta rými í þau enda hendast þau alltaf á fljúgandi siglingu sama hvort það er tölt, brokk eða skeið, nú er bara að vona að þau verði sem flest föðurbetrungar svo maður hafi eitthvað til að gleðjast yfir í þessari ólukkans efnahagskreppu með yfirvofandi Kötlugos að auki.

Steinnesbúið fór með ræktunarbússýningu á Ræktun 2010 í Skagafirði og hægt er að segja að það hafa gengið einkar vel, en þar reið fremstur gutti að nafni Kristófer Már Tryggvason, sat hann höfðingjann Gamm frá Steinnesi, eftir honum riðu svo Sölvi Sig á Valkyrju frá Steinnesi en hún undan Kylju og Roða frá Múla, Sigurður Pálsson eigandi Glettings frá Steinnesi ásamt föður sínum Páli Bjarka á Flugumýri, og svo Tryggvi Bjöss á Ólgu frá Steinnesi Gammsdóttur en segja má að það par hafi ástamt þeim tveim fyrrnefndu fallið í skuggan af Kristófer en hann átti sýninguna og sýndi að hann verður ábyggilega föðurbetrungur og er ekki hægt að segja annað en að ræktunin hjá Tryggva sé að skila sér bæði í hrossum og hans eigin afkvæmahóp ;)

Tamningar eru að sjálfsögðu það sem efst er í huga okkar ræktendanna á þessum mánuðum ársins enda kynbótasýningar farnar að nálgast óðfluga. Steinnesbúið er með á  þriðjatug hrossa í tamningu hér og þar, helst má þó nefna  hjá Tryggva Bjöss en hann er með Braga frá Kópavogi, Óðinn frá Hvítárholti, Gamminn gamla, Ólgu frá Steinnesi Gammsdóttur og svo síðasta en ekki sísta Kátínu frá Steinnesi en hún er systir Kiljans undan Kylju og Garp frá Hvoli sem er 1.v Gammssonur. Einnig eru Agnar Þór og Birna Tryggva með nokkur, Gammsdótturina Dívu frá Steinnesi og Gammsbróðurinn Tjald frá Steinnesi, en stefnt er með þessi bæði í dóm í vor. Hérna í Steinnesi hafa þeir sest að í hesthúsinu Ólafur Magnússon á Sveinsstöðum og Heimir og Hanna verknámsnemar hjá honum, þau koma ríðandi hvern dag enda stutt bæjarleið að fara, sjaldan hefur verið jafn mikið af hrossum á húsi í Steinnesi en húsið geymir ein 15 stykki sem stendur.

Jæja ætli maður hættu nú ekki þessu blaðri og fari að einbeita sér að alvöru og mjög gagnlegri ræktunargrein á íslandi, hinni virtu sauðfjárrækt en eitthvað verða blessaðar ær víst að fá að eta  á þessum tíma sólarhrings. Stefnan er að fara að henda inn hér í það minnsta vikulega einhverju fyrir lesandann til að hafa gaman af, sjáum til hvernig það gengur.

Meðfylgjandi mynd er af Kristórfer og Gammsa gamla.



Takk fyrir.
Jón Árni




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf