Frjósemisguðinn Freyr er mættur í sína árlegu vorheimsókn í Steinnes. Hér vinna allir sem vettlingi geta
valdið við höfuðbúgreinina á bænum – sauðfjárrækt. Mikill gangur er í burði, sól á himni
í norðangaddinum og tún byrjuð að grænka. Í vitðali við Steinnessíðuna sagði aðstoðarbóndi, Jón Árni, að
líklega væru um 220-250 ær bornar og ansi mörg lömb komin út á tún að bíta gras. Það er
þó ekki minni gangur í aukabúgreininni – hrossarækt. Með lóunni aðfaranótt 2. maí kom fyrsta folaldið í heiminn og
núna í gærmorgun fæddist sjötta folald þessa vors.
Venus frá Steinnesi færði okkur fyrsta folaldið, fallega jarpstjörnótta meri undan Gammi frá Steinnesi.
Þá leit næsta stóðhestsefni ársins dagsins ljós. Krafla frá Brekku, Gustsdóttir gaf af sér
rauðstjörnóttan hest undan Gammi. Folaldið ber strax merki þess að vera Gammssonur en það hefur sérstakt geðslag, er forvitið og
óhrætt við heimilisfólk.
Mikil eftirvænting og gleði ríkti á bænum þegar Vaka frá Steinnesi kastaði og í ljós kom að
folaldið sem hún gekk með undan Kiljani frá Steinnesi var sótrauðstjörnótt meri, þykir okkur þetta vera efnilegt folald enda framfallegt og
háfætt.
Þegar heimilisfólk renndi út eftir að athuga með merarnar í gærmorgun var Melódía frá
Steinnesi nýköstuð. Það hljómar vel í eyrum Melódíu og okkar hinna að um sé að ræða brúnsokkótta meri
með hvítan blett á hálsi, undan Gammi.
Í morgun fæddist annar Gammssonur, jarpur hestur undan Jörp, d. Tvífara frá Kjartansstöðum.
Vorkveðjur frá Steinnesi



