| Hersteinn frá Steinnesi - IS2008156287 Hersteinn er tveggja vetra foli, bleikálóttur að lit, hann hefur mjög góðan fótaburð undir sjálfum sér,faxprúður. Hersteinn er undan fola sem hét Klettur frá Skagaströnd en hann er undan gæðingar móðurinni Sunnu frá Akranesi, semsagt bróðir Kvists frá Skagaströnd. Klettur fórst af slysförum í hryssum tveggja vetra gamall svo lítið þekking var komin á hæfileika hans annað en að hann var vel hágengur og gullfallegur þroskamikill foli undan Óð frá Brún. Þess má geta að Klettur á fimm 1.verðlauna systkini og eitt með 7.99. Hersteinn er svo undan Heru frá Steinnesi sem er meri með fínan fótaburð og faxmikil, hún var undan gæðingnum Glettu frá Skarði og höfðingjanum mikla Kolfinni frá Kjarnholtum II svo ættin skemmir ekki fyrir þar. Kynbótamat - 114 |
|
| Móðir Hera frá Steinnesi - IS1997256297
Faðir: Kolfinnur frá Kjarnholtum II - 8.45 Móðir: Gletta frá Skarði - 8.02 |
Faðir
![]() Klettur frá Skagaströnd - IS2005156955
Faðir: Óður frá Brún - 8.34 Móðir: Sunna frá Akranesi - 8.16 |




